Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ráðið Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur í starf aðstoðarmanns ráðherra. Hún hefur þegar hafið störf í ráðuneytinu.

Gunnfríður Elín er búfræðingur að mennt með meistaragráðu í erfða- og kynbótafræðum frá Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn. Hún hefur frá árinu 2007 starfað sem nautgriparæktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.