Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, núverandi fréttastjóri 24 stunda tekur við sem ritstjóri blaðsins þann 2. júní næstkomandi en eins og áður hefur verið greint frá verður Ólafur Þ. Stephensen, núverandi ritstjóri 24stunda ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins.

„Ég hlakka til að taka við ritstjórastarfi á 24 stundum. Við einsetjum okkur að skrifa á hverjum degi skemmtilegt og spennandi blað, besta fríblaðið á markaðnum,“ segir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, nýráðin ritstjóri 24 stunda.