Leiðir Gunnhildar Örnu Gunnarsdóttur og Símans hafa skilið. Hún hefur verið upplýsingafulltrúi fyrirtækisins undanfarin fimm og hálft ár.

„Þetta var áhugaverður tími mikilla breytinga í starfsemi Símans og ég geng reynslunni ríkari frá borði. Ég þakka öllu því góða fólki sem ég hef unnið með fyrir samstarfið og óska þeim og Símanum velfarnaðar. Ég er stolt af störfum mínum fyrir Símann síðustu ár og að hafa átt þátt í árangrinum sem náðst hefur við að skapa Símanum breytta ásýnd og umgjörð,“ er haft eftir Gunnhildi Örnu.

Orri Hauksson forstjóri Símans þakkar Gunnhildi Örnu fyrir framlag hennar til Símans. „Við höfum gert miklar breytingar á Símanum síðustu ár og munum við þessi tímamót brjóta þetta starf upp til hagræðingar og fela það öðrum starfsmönnum innan samstæðunnar. Við höfum átt gott samstarf og óskum Gunnhildi velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur.“