Gestur Jónsson, verjandi Gunnlaugs Briem, krefst frávísunar í máli embættis saksóknara gegn honum og sýknun yfir honum. Fyrirtaka var í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og var þar lögð fram greinargerð Gunnlaugs í málinu. Gunnlaugur Briem var í janúar síðastliðnum ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum vegna vantaldra tekna upp á tæpar 600 milljónir króna og skotið undan 60 milljónum króna. Hann var umsvifamikill á gjaldeyrismarkaði á árunum 2006 til 2008 og gerði 584 gjaldmiðlasamninga á þessum þremur árum. Á sama tíma vann hann á eignastýringarsviði Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Gunnlaugur hefur neitað sök í málinu .

Fram kemur í ákærunni að Gunnlaugur gerði gjaldmiðlasamninganna við Landsbankann og Íslandsbanka (síðar Glitni) í evrum og krónum. Háar fjárhæðir voru á bak við einstök viðskipti og námu þau frá frá 100 milljónum króna og allt yfir 630 milljónir. Þeir sem fundnir eru sekir um brot á lögunum geta átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisdóm og greiðslu sektar allt að tífaldri skattfjárhæðinni. Hún verður þó aldrei lægri en sem nemur tvöfaldri skattfjárhæðinni.

Guðmundur Þ. Þórhallsson , framkvæmdastjóri Lífeyrissóðs verslunarmanna, sagði í samtali við vb.is sama dag og fjallað var um málið á sínum tíma að gjaldeyrisviðskipti Gunnlaugs hafi komið öllum á óvart. Stjórninni hafi ekki verið kunnugt um þau fyrr en hún fékk pata af rannsókn embættis sérstaks saksóknara í fyrrasumar og hefði stjórn lífeyrissjóðsins aldrei veitt honum leyfi til að stunda viðskiptin enda um klárt brot á reglum að ræða. Gunnlaugur hætti störfum hjá lífeyrissjóðnum til að fara í nám.