Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson hefur verið kjörinn formaður stjórnar Icelandic Group hf. og mun jafnframt gegn starfsskyldum forstjóra. Á hluthafafundi í gær var kjörin ný stjórn félagsins íkjölfar breytinga á eignarhaldi.

Stjórnina skipa: Baldur Örn Guðnason, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson
Illugi Gunnarsson, Jón Kristjánsson, Magnús Þorsteinsson. Varamenn eru Páll Þór Magnússon og Steingrímur Pétursson.

Í kjölfar aðalfundar kom ný stjórn saman og skipti með sér verkum þannig að Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson er formaður stjórnarinnar og Jón Kristjánsson varaformaður. Auk þess að vera formaður mun Gunnlaugur Sævar einnig sinna starfsskyldum forstjóra.