Nýr lögmaður hefur hafið störf hjá Local lögmönnum. Hann heitir Gunnlaugur Garðarsson og er héraðsdómslögmaður og löggiltur verðbréfamiðlari.

Nýr lögmaður hefur hafið störf hjá Local lögmönnum. Hann heitir Gunnlaugur Garðarsson og er héraðsdómslögmaður og löggiltur verðbréfamiðlari.

„Gunnlaugur starfaði áður hjá Kaupþingi ehf. (áður slitastjórn Kaupþings banka hf.) þar sem hann fékkst m.a. við úrlausn ágreiningsmála, málflutning og samningagerð í tengslum við endurskipulagningu Kaupþings auk þess sem hann hafði umsjón með skuldabréfaútgáfum félagsins. Verkefni Gunnlaugs hjá Kaupþingi kölluðu á mikil samskipti við kröfuhafa félagsins, ráðgjafa og opinbera aðila. Hann hefur öfluga þekkingu á ýmsum réttarsviðum lögfræðinnar er lúta að viðskiptalífinu og má þar nefna kröfurétt, samningarétt, verðbréfamarkaðsrétt og gjaldþrotaskiptarétt,“ segir í tilkynningu um málið.