Gunnlaugur Sigmundsson segir það vonbrigði að ekki hafi fengist efnislegur dómur í meiðyrðamáli hans gegn Teiti Atlasyni, en á föstudaginn staðfesti Hæstiréttur úrskurð héraðsdóms um frávísun málsins vegna formgalla.

Yfirlýsing Gunnlaugs í heild sinni:

„Við málsmeðferð fyrir héraðsdómi Reykjavíkur vegna ærumeiðandi ummæla Teits Atlasonar fékkst ekki efnisleg niðurstaða vegna formgalla. Frávísun héraðsdóms á málinu var í framhaldinu kærð til Hæstaréttar með ósk um að héraðsdómi yrði gert að taka málið til efnislegrar umfjöllunar.

Hæstiréttur hefur með úrskurði sínum s.l. föstudag staðfest úrskurð héraðsdóms. Það er miður að Hæstiréttur hafi hafnað því að málið hljóti efnislega meðferð þrátt fyrir nýlega dóma Hæstaréttar í málum þar sem málatilbúnaður var með svipuðum hætti. Með frávísun á grundvelli formgalla tók dómurinn því ekki afstöðu til þess hvort níð eins og það sem við hjón höfum mátt þola af hálfu Teits Atlasonar sé heimilt lögum samkvæmt.

Þó það séu vonbrigði að ekki hafi fengist efnislegur dómur í málið vekjum við athygli á þeirri staðreynd að við málsmeðferð fyrir héraðsdómi Reykjavíkur kom skýrt fram að ummæli Teits Atlasonar um okkur eiga ekki við rök að styðjast.

Hverjar sem endanlegar lyktir þessa tiltekna máls verða er það ljótur blettur á íslensku samfélagi að til sé fólk sem telji pólitískum skoðunum sínum til framdráttar að nota blogg og netmiðla til að niða nafngreinda einstaklinga með ósannindum og gífuryrðum. Teitur Atlason upplýsti fyrir héraðsdómi að ástæða þess að hann réðst að okkur hjónum með staðlausum skrifum sínum hafi verið sú, að hann hafi látið ummæli sonar okkar sem starfar að stjórnmálum fara í taugarnar á sér. Þjóðfélag er komið í mikinn vanda ef fjölmiðlar og dómstólar láta óátalið að foreldrar eða börn stjórnmálamanna þurfi að sæta persónulegum árásum vegna stjórnmálastarfa ættingja sinna. Slíkt ástand á ekki að líða og við munum halda áfram að berjast gegn slíkri þróun.

Teitur Atlason hefur lýst áhuga á að bjóða sig fram til setu á Alþingi. Teitur tekur með sér í sína pólitísku vegferð þau vinnubrögð sem hann hefur viðhaft gagnvart okkur og fleira fólki.„