Guðný Helga Herbertsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Íslandsbanka og hefur störf þann 10. janúar 2011.

Hún mun bera ábyrgð á samskiptum bankans við fjölmiðla og móta samskiptastefnu bankans útá við, samkvæmt tilkynningu frá Íslandsbanka. Þá mun Guðný bera ábyrgð á samfélagsstefnu bankans.

Guðný Helga hefur starfað sem blaða- og fréttamaður hjá Fréttablaðinu og Stöð 2 frá árinu 2008 og var hún meðal annars tilnefnd til blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands árið 2009.

Hún er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í lögum og viðskiptum Evrópusambandsins frá Viðskiptaháskólanum í Árósum.