Guðný Rósa Þorvarðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Parlogis hf. Parlogis er þjónustufyrirtæki í eigu Atorku Group hf. og hefur það meginhlutverk að þjóna heilbrigðis- og rannsóknargeiranum á sviði vörustjórnunar (logistics services). Guðný Rósa er viðskiptafræðingur að mennt og starfaði sem markaðs- og innkaupastjóri Skeljungs hf. 1996-2005. Hún hefur frá apríl 2005 verið markaðsstjóri Parlogis.

Parlogis annast víðtæka vörustjórnun og dreifingu fyrir um 30 framleiðendur og umboðsmenn til um 2.000 kaupenda. Áætluð velta félagsins árið 2005 er um 7 milljarðar króna og starfsmenn þess eru um 80 talsins.

Guðný Rósa er gift Ágústi Má Jónssyni, heilsuþjálfara á Reykjalundi, og eiga þau þrjú börn.