Gyða Hlín Björnsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Gyða hefur yfir 12 ára starfsreynslu á þessu sviði. Hún lauk MBA námi við Háskóla Íslands árið 2014 og Markaðssamskiptum við Háskólann á Bifröst árið 2012. Gyða situr í stjórn Stjórnvísi auk þess að vera í stjórn í sjávarútvegsfyrirtækinu Valafelli ehf. Gyða er 38 ára gömul og er gift Georg Andersen. Þau eiga samtals fimm börn á aldrinum 10 til 21 árs.

Að sögn Inga Rúnar Eðvarðssonar deildarforseta Viðskiptafræðideildar er ráðning Gyðu liður í að efla enn betur samstarf deildarinnar við atvinnulífið enda ein af fjölmennustu deildum Háskólans og munu verkefni Gyðu verða m.a. að móta markaðsstefnu deildarinnar og sinna markaðs- og kynningarmálum fyrir allar þær námsleiðir sem deildin bíður upp á en við deildina stunda um 1300 nemendur nám á 12 sérsviðum, doktorsnámi auk grunnáms.