Gyða Hrönn Einarsdóttir, formaður Félags lífeindafræðinga (FL) var kjörin varaformaður BHM á nýlega afstöðnum aðalfundi bandalagsins.

Gyða sem er fædd árið 1974, lauk BSc-prófi í lífeindafræði árið 2003 og MS-prófi í sömu grein árið 2014. Einnig hefur hún lokið diplóma-námi í opinberri stjórnsýslu og námi til kennsluréttinda í náttúrufræðigreinum.

Gyða Hrönn var kjörin í samninganefnd FL árið 2005 og hefur frá þeim tíma gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið meðfram störfum sínum sem lífeindafræðingur á Landspítalanum og stundakennari við Háskóla Íslands. Hún hefur verið formaður félagsins frá árinu 2014.