Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, tilkynnti á miðstjórnarfundi sambandsins í dag að hann hygðist ekki bjóða sig fram til endurkjörs á 43. þingi ASÍ í október. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu sambandsins.

Gylfi segir að þetta hafi ekki verið einföld ákvörðun, en að hann sé engu að síður sannfærður um að hún sé rétt.

„Ég tók við sem forseti ASÍ þremur vikum eftir hrun og það var gríðarleg áskorun sem beið okkar sem vorum í forystu á vinnumarkaðinum á þeim tíma. Nú 10 árum síðar erum við komin fyrir vind og vel það. Kaupmáttaraukningin á síðustu þremur árum er sú mesta í Íslandssögunni, atvinnuleysi er lítið, verðbólga lág og vextir í sögulegu lágmarki, þótt enn séu þeir alltof háir. Allir þessir þættir skipta launafólk miklu máli,“ segir Gylfi.

„Undanfarið hafa deilur innan verkalýðshreyfingarinnar hins vegar harðnað og menn tekist á um leiðir í kjarabaráttunni. Í þeim deilum virðist því miður sem persóna mín, í stað skoðana minna, sé orðin aðalatriði og þá á kostnað málefnalegrar umræðu. Alþýðusambandið er meira en 100 ára gamalt og gríðarlega mikilvægt í allri réttinda- og kjarabaráttu launafólks á Íslandi. ASÍ er mun stærra en nokkur einstaklingur, en ég viðurkenni að það er erfitt og lýjandi að eiga í átökum við félaga sína. Ég hef ávalt verið reiðubúinn til að berjast með félögum mínum og fyrir þá, en að berjast við þá gefur mér ekkert og skilar heldur engu fyrir hreyfinguna.

Gylfi Arnbjörnsson hefur verið forseti ASÍ í 10 ár en hann var fyrst kjörinn í október 2008 og endurkjörinn fjórum sinnum eftir það. Þar á undan var Gylfi framkvæmdastjóri ASÍ frá 2001 en hann kom fyrst til starfa hjá verkalýðshreyfingunni árið 1989, þá sem hagfræðingur ASÍ hjá Kjararannsóknarnefnd.

„Ég er sannfærður um að sú sýn sem forysta Alþýðusambandsins og aðildarfélaganna hefur haft að leiðarljósi á síðustu áratugum hafi skilað miklum árangri og ég vona að áhersla verði áfram lögð á að tryggja stöðugleika og langtímaárangur í kjarabaráttunni. Ef brotthvarf mitt getur orðið til þess að auka líkurnar á að áfram verði haldið á svipuðum nótum ber mér að íhuga stöðu mína og hlutverk. Það hef ég nú gert og niðurstaða mín er sú að ég mun ekki gefa kost á mér sem forseti ASÍ."