„Ég tel þetta vera lífsnauðsynlegt skref í ferli sem miðar að endurreisn Eimskips og að drög að nauðasamningum bjóði upp á bestu fáanlegu útkomu fyrir alla lánardrottna samstæðunnar,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélagsins í tilkynningu frá félaginu en eins og tilkynnt var fyrir stundu verður nýtt félag til sem tekur yfir rekstur þess gamla.

„Ég vona að lánardrottnar okkar verði á sama máli og greiði atkvæði með þessum drögum sem munu gefa Eimskip fjárhagslegan styrk til að takast á við efnahagslega erfiðleika og leggja grundvöll að virðisaukningu í framtíðinni.“

Í tilkynningunni lýsir Gylfi yfir ánægju með Yucaipa að Eimskip.

„...ég tel að stuðningur erlends fjárfestingarsjóðs við íslenskt fyrirtæki sé mjög jákvætt skref fyrir hagkerfi okkar í heild og sýni að erlendir fjárfestar eru reiðubúnir að fjárfesta á Íslandi,“ segir Gylfi.

„Yucaipa er ekki einungis fjárfestir heldur samstarfsaðili sem mun leggja til rekstrarlega sérþekkingu og valkosti við stefnumótun fyrir endurreista starfsemi okkar. Við hlökkum til að kanna valkosti fyrir Eimskip og önnur félög í eignasafni Yucaipa til að virkja augljós tækifæri til samvinnu milli þeirra í sambandi við kæligeymslu- og frystigámarekstur.“

Gylfi segir að eftir sem áður muni meginverkefni félagsins vera þjónusta fyrir Ísland, Norður Atlantshafssvæðið, Færeyjar og Noreg. Á síðustu sex mánuðum hafi félagið unnið af krafti við að minnka afkastagetu og aðlaga umfang starfseminnar að minni eftirspurn á öllum sviðum.

„Starfsfólk okkar hefur einnig sýnt mikla óeigingirni og fórnfýsi á þessum erfiðu tímum og kann ég því miklar þakkir fyrir,“ segir Gylfi.

Hann undirstrikar þó að nauðasamningsferlið mun væntanlega ekki hafa nein áhrif á daglegan rekstur Eimskips, hvorki á Íslandi né erlendis.