Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnukappi hjá Tottenham Hotspurs vill gera sitt til að létta undir með börnunum sem þurfa að dvelja á Barnaspítala Hringsins um jólin en bróðir hans kom með gjöf frá Gylfa í dag.

Gylfi gaf Barnaspítala Hringsins 10 Playstation 3 leikjatölvur, 15 tölvuleiki og 10 auka fjarstýringar. Það var bróðir hans, Ólafur Már Sigurðsson, sem koma færandi hendi á spítalann í dag.