© Aðsend mynd (AÐSEND)

Gylfi Þór Þorsteinsson hefur verið ráðinn markaðs- og sölustjóri Vefpressunnar, sem rekur netmiðlana Pressuna, Eyjuna og Bleikt.

Fram kemur í tilkynningu að Gylfi Þór hafi mikla reynslu af störfum við fjölmiðla. Hann var sölu og markaðsstjóri fyrir Viðskiptablaðið á árunum 1994-2000 og aftur sem markaðsstjóri frá 2004-2005, auglýsingastjóri DV, 2000-2004, auglýsingastjóri á Morgunblaðinu 2005-2010 og var framkvæmdastjóri mbl.is frá 2010-2012. Þá var Gylfi Þór starfandi framkvæmdastjóri fyrir Auglýsingamiðlun í afleysingum frá lok árs 2012 þar til fyrir skemmstu.

Gylfi Þór situr í stjórn Hestamannafélagsins Harðar, Rauða Krossins í Mosfellsbæ og í Neyðarnefnd Höfuðborgarsvæðisins.