Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra hefur úthlutað styrkjum af ráðstöfunarfé ráðherra til fimm verkefna vegna ritgerðarsmíði og rannsókna. Styrkirnir voru auglýstir til umsóknar 8. maí síðastliðinn og alls sóttu 16 aðilar um styrk.
Vinnuhópur sem skipaður var fulltrúum skrifstofa ráðuneytisins fór yfir umsóknir og gerði tillögu um úthlutun. Við matið var lagt til grundvallar að viðkomandi verkefni fjallaði um einhvern af málaflokkum ráðuneytisins og útkoman gæti nýst ráðuneytinu.
Alls úthlutaði Gylfi styrkjum að fjárhæð 1,2 milljónum króna. Eftirfarandi er listi yfir styrkþega, verkefni þeirra og fjárhæð styrksins.
Páll Ammendrup Ólafsson, Msc fjármálafræði
Áhrif skortsölu á eignaverð, bólur og hrun
300.000
Álfrún Tryggvadóttir, Msc fjármálafræði
Breytingar á eignarhaldsskipan eftir fjármálahrunið og hvort minni hluthafar hafi orðið fyrir eignarnámi af hálfu stærri hluthafa
250.000
Inga Lára Gylfadóttir, Msc hagfræði
Ritun bókarinnar „Okkar hagur“ sem ætlað er að auka skilning nemenda í efstu bekkjum grunnskóla og fyrsta bekk framhaldsskóla á umgengi við peninga og fjárhagslegar skuldbindingum
250.000
Högni Haraldsson, Msc hagfræði
Viðbrögð við hruninu og forgangsröðun aðgerða með tilliti til reynslu annarra þjóða
200.000
Rannsóknarsetur verslunarinnar
Neyslubreytingar á Íslandi í kjölfar efnahagshrunsins og lærdómur af þeim
200.000