Seðlabanki Íslands og Gylfi Zoega, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, hafa gert með sér samkomulag á sviði rannsókna.

Í samkomulaginu felst að Gylfi vinnur að rannsóknum er tengjast starfssviði Seðlabankans í samvinnu við sérfræðinga á hagfræðisviði bankans.

Þetta kemur fram á vef Seðlabankans.

Hann mun einnig verða til ráðgjafar hvað áhrærir áformaðar rannsóknir í Seðlabankanum á sambandi fjármálaskilyrða og fjárfestingar fyrirtækja. Samkomulagið gildir í ár.