Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti á fundi sínum í gær að ekki verði innritaðir nemendur á fyrsta ár  í tölvunarfræði veturinn 2008-2009.

Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að einungis fjórir nemendur sóttu um námið að þessu sinni og hefur endurskoðun á skipulagi námsins fyrir þremur árum ekki skilað þeim árangri sem vonast var eftir.

Háskólaráð samþykkti einnig að nú þegar verði hafið endurmat á skipulagi og forsendum námsins. Vegna þessa verður að endurskoða starfsmannamál í tölvunarfræði í heild, þar sem framtíð núverandi náms er óviss og ekki er þörf fyrir alla kennara í tölvunarfræði til að ljúka kennslu nemenda næstu tvo vetur.

Í dag var öllum kennurum í tölvunarfræði sagt upp störfum en þeir eru sex talsins. Hluta starfsmanna verður gefin kostur á endurráðningu til að ljúka kennslu núverandi nemenda.

Í framhaldinu verður unnið að því að breyta tilhögun námsins og bjóða upp á það í formi fjarnáms en það samræmist vel áætlun Háskólans á Akureyri um að efla fjarnám við stofnunina, segir í tilkynningunni.