Hacker Halted tölvuöryggis- og upplýsingamálaráðstefnu verður haldin í Hörpu í október, en þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefnan er haldin í Evrópu. Vodafone er einn helsti styrktaraðili ráðstefnunnar.
Hacker Halted verður í Hörpu dagana 07. – 08. október og er reiknað með að hátt í 300 innlendir og erlendir gestir mæti til ráðstefnunnar, þar á meðal margir af æðstu yfirmönnum öryggis- og upplýsingamála margra stærstu fyrirtækja heims.
Það voru Guðmundur Pálmason, framkvæmdastjóri Promennt og Anna Kristín Kristjánsdóttir, markaðsstjóri hjá Vodafone sem undirrituðu samninginn í dag.
Hacker Halted hefur síðustu tíu ár verið haldin í Bandaríkjunum, Japan, Malasíu og Dubaí svo nokkur lönd séu nefnd.
Fjöldi virtra fyrirlesara á sviði öryggis- og upplýsingamála munu koma fram á ráðstefnunni en í ár er kastljósinu meðal annars beint að stafrænum öryggisógnunum og hvernig hægt er að verjast þeim. Þá verða haldnar bæði vinnustofur og námskeið um margvísleg öryggis- og upplýsingamál.
Aðeins er vika síðan KPMG undirritaði samskonar samning og ljóst að mikill fengur er í liðsinni þessara fyrirtækja.
Það er fyrirtækið ProConf, dótturfyrirtæki Promennt, sem heldur ráðstefnuna í Hörpu og skráningu á hana hafin. Búið er að tryggja réttinn á ráðstefnunni hér á landi næstu þrjú árin og mun Jay Bavisi, forseti EC-Council halda aðalfyrirlestur ráðstefnunnar.