Frá maí á síðasta ári til apríl 2018 voru að jafnaði 17.866 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 635 eða 3,7% frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 191.000 einstaklingum laun sem er aukning um 4,4% samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Í apríl 2018 voru 2.676 launagreiðendur og um 13.100 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, og hefur launþegum fjölgað um 12% samanborið við apríl 2017. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 3%.