Landsframleiðsla í Brasilía stóð í stað á þriðja ársfjórðungi ársins. Vísbendingar eru um að verulega hafi dregið úr þeim mikla vexti sem einkennt hefur efnahag landsins á síðustu árum.
Financial Times fjallar um efnahagshorfur í Brasilíu í dag. Í umfjöllun blaðsins segir að lítill hagvöxtur sýni hversu viðkvæm lönd líkt og Brasilía, Indland og Kína eru fyrir efnahagsástandi á evrusvæðinu og Bandaríkjunum. Hagvöxtur í Brasilíu hefur á síðustu árum verið meðal því mesta sem gerist í heiminum. Í fyrra nam vöxturinn 7,5% frá fyrra ári.
Mikið hefur dregið úr einkaneyslu í landinu. Að sama skapi benda nýjar tölur um framleiðslu til þess að hún hafi í síðasta mánuði dregist saman, í fyrsta sinn í þrjú ár.