Samkvæmt veðmálasíðunni Betsson voru meiri líkur á að Páll Magnússon myndi ekki setjast í forstjórastól Bankasýslu ríkisins fyrir þann 1. nóvember næstkomandi, en að hann verði tekinn við starfinu. Páll hefur nú tilkynnt að hann muni ekki taka við starfinu.

Á síðunni er hægt að veðja á hvort Páll verði starfandi forstjóri í byrjun næsta mánaðar. Spurt er „Mun Páll Magnússon vera starfandi sem forstjóri Bankasýslu ríkisins 1. nóvember 2011“. Gefinn er stuðullinn 2.15 ef veðjað er með því að Páll verði starfandi. Stuðullinn er hins vegar lægri ef veðjað er á að Páll verði ekki tekinn við starfinu, eða 1.60.

Veðjað á Pál Magnússon á Betsson
Veðjað á Pál Magnússon á Betsson
© vb.is (vb.is)