Hagar hafa hækkað EBITDA afkomuspá yfirstandandi rekstrarárs um 700 milljónir króna og reikna nú með að EBITDA afkoma Haga samstæðunnar fyrir rekstrarárið 2021/22 verði á bilinu 9.300 til 9.800 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Í tilkynningunni kemur fram að uppgjör fyrri helmings rekstrarárs Haga, þ.e. tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2021, verði birt þann 19. október nk. Samkvæmt drögum að uppgjörinu verði EBITDA afkoma félagsins umfram áætlanir, en bæði hafi rekstur verið nokkuð umfram áætlanir auk þess sem afkomuáhrif af sölu Útilífs komi fram á öðrum ársfjórðungi.

Gera megi ráð fyrir að EBITDA afkoma á fyrri árshelmingi verði um 5.500 milljónir króna, en til samanburðar var EBITDA afkoma fyrri árshelmings í fyrra 4.316 milljónir króna.