Seðlabanki Brasilíu hefur hækkað stýrivexti bankans um 0,5% og standa þeir nú í 12,75%. Vextirnir hafa ekki verið svo háir þar í landi í meira en sex ár. BBC News greinir frá málinu.
Þar er greint frá því að seðlabankinn hafi ákveðið að hækka vextina í þeim tilgangi að ná tökum á vaxandi verðbólgu, en hún hefur ekki verið meiri í tólf ár og nemur nú 7,4%. Verðbólgumarkmið Seðlabankans stendur hins vegar í 6,5%.
Efnahagur Brasilíu er með þeim sem vaxið hafa hvað hraðast undanfarin ár, en nú er útlit fyrir að hægja kunni á vextinum. Spá hagfræðingar því að efnahagur landsins muni dragast saman um meira en 0,5% á þessu ári.