Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Stýrivextir hækka því úr 6,0% í 6,5%.

„Peningastefnunefnd telur líklegt að auka þurfi aðhaldið enn frekar á næstunni til þess að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Lakari horfur skýrist einkum af kjarasamningum

Nefndin minnist á að verðbólga í janúar mældist 9,9% en undirliggjandi verðbólga hélst óbreytt í 7%. Þótt takið hafi að hægja á húsnæðismarkaði og alþjóðleg verðbólga hafi minnkað lítillega sé verðbólguþrýstingur enn mikill og verðhækkanir á breiðum grunni.

„Verðbólguhorfur hafa versnað frá síðasta fundi nefndarinnar og þótt verðbólga hafi líklega náð hámarki tekur lengri tíma að ná henni niður í verðbólgumarkmið bankans en áður var talið.“

Nefndin segir að lakari horfur skýrist einkum af því að nýgerðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði feli í sér töluvert meiri launahækkanir en þá var gert ráð fyrir. Einnig hafi gengi krónunnar lækkað og útlit sé fyrir meiri framleiðsluspennu á spátímanum.

„Við þetta bætist að útlit er fyrir að aðhald fjárlaga verði minna en gert var ráð fyrir í nóvemberspá bankans þrátt fyrir að dragi úr hallarekstri ríkissjóðs í ár.“

Verðbólguvæntingar til lengri tíma séu enn vel yfir markmiði og raunvextir bankans hafa lækkað frá síðasta fundi.

Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans var hagvöxtur í fyrra 7,1%. Nefndin bendir á að það sé töluvert meira en gert var ráð fyrir í nóvember og yrði mesti hagvöxtur á einu ári síðan árið 2007 gangi spáin eftir. „Horfur eru á minni hagvexti í ár en þó áfram búist við töluverðri spennu á vinnumarkaði.“