Græni liturinn er allsráðandi á listum yfir helstu hlutabréfavísitölur Evrópu nú í morgunsárið en flestar kauphallair hafa verið opnar í um hálfa klukkustund. Þó er liturinn ekki eins skær og í gær, enn sem komið er.

FTSE-vísitalan hefur hækkað um 1,2% það sem af er degi og DAX-vísitalan um 1,4%, Í Stokkhólmi hefur OMXS30 hækkað um 1%.