Hlutabréfavísitölur í Evrópu hækkuðu við upphaf viðskipta í dag. Hækkanir eru einkum raktar til jákvæðra merkja í bandarískum efnahag. Þar er helst litið til minna atvinnuleysis og að neytendur eru bjartsýnni en áður.

FTSE 100 vísitalan í London hækkaði um 0,4%, DAC í Frankfurt um 0,9% og CAC-40 í París hækkaði einnig.