Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,23% í dag og endaði í 1787,63 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,93% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 2,42% í viðskiptum sem hljóða upp á 371 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 31,8 krónum á hlut. Gengi bréfa Marel hækkaði þá einnig, eða um 1,01% í rúmlega 308 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 250,50 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Haga, eða um 1,42% í viðskiptum sem hljóða upp á 189 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 45 krónur. Gengi bréfa HB Granda lækkaði þá einnig, eða um 0,92% í viðskiptum sem hljóða þó aðeins upp á 732 þúsund krónur. Verð á hvert bréf félagsins er þá 32,2 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 1,6 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var tæplega 15 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,9% í dag í 1,6 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 8,2 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 0,7 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,4% í 7,4 milljarða króna viðskiptum.