Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,68% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.166,38 stigum. Gengi bréfa VÍS hækkaði um 1,57%, Haga um 1,38% og Fjarskipta um 0,98%. Gengi bréfa Icelandair lækkaði um 0,15%, en gengi bréfa annarra félaga annað hvort hækkaði eða stóð í stað.

Velta með bréf félaga á Aðallista nam 503 milljónum króna. Viðskipti með bréf Hampiðjunnar, sem er á First North markaðnum, námu 5,3 milljónum króna án þess að það hefði áhrif á gengi bréfanna.

Skuldabréfavístiala GAMMA hækkaði u m0,02% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,04% en sá óverðtryggði hækkaði um 0,18%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni nam 4,2 milljörðum króna.