Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,12% í dag og endaði í 1944,46 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 3,41% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 3,78% í viðskiptum sem hljóða upp á 1 milljarð króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 261 króna. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 0,52% í 1,14 milljarða króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair Group er þá 38,5 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Símans, eða um 1,92% í 285 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Símans er 3,06 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,79% í viðskiptum upp á 244 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 44 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 3,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1,1% í dag í 3,5 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 1,5 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 1,2 milljarða króna viðskiptum.