Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,84% í dag og endaði í 1.129,4 stigum. Gengi bréfa TM hækkaði um 1,69%, Haga um 1,59% og Eimskips um 1,49%. Ekkert félag lækkaði í verði í dag. Velta á hlutabréfamarkaði nam 861,8 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,44% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,68% á meðan sá óverðtryggði lækkaði um 0,15%. Velta í viðskiptum með þau skuldabréf sem eru í vísitölunni nam 8,7 milljörðum króna.