Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,79% í dag og endaði í 1,842.12 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 2,04% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair, eða um 1,23% í viðskiptum sem hljóða upp á 281 milljón króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 33 krónum á hlut. Gengi bréfa Marel hækkaði þá einnig, eða um 1,32% í litlum 13 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 268,5 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Regins, eða um 0,45% í viðskiptum sem hljóða upp á litlar 14 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 22,25 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 318 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmega 210 milljónir króna.