GAMMA skuldabréfavísitalan hækkaði lítillega í viðskiptum dagsins í dag, eða um 0,01%. Lokagildi vísitölunnar var 224,04 stig. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,03% en sá óverðtryggði lækkaði um 0,03%. Velta á skuldabréfamarkaði í gær nam 11,4 milljörðum króna.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 1,18% í dag og endaði í 923,36 stigum. Gengi bréfa Marels hækkaði um 2,40% í óvenjumiklum viðskiptum, eða um 170 milljónum króna. Þá hækkaði Icelandair um 0,38%. Heildarvelta með hlutabréf nam tæpum 186 milljónum króna í dag.