Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,61% í dag og endaði í 1.204,35 stigum. Gengi bréfa Icelandair hækkaði um 1,41%, Regins um 0,89% og Marels um 0,68%. Ekkert félag lækkaði í verði. Velta á hlutabréfamarkaði nam 1.420 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,30% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,41% en sá óverðtryggði lækkaði um 0,01%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 4,7 milljörðum króna.