Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,04% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,08%, en sá óverðtryggði lækkaði um 0,05%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 8,2 milljörðum króna og þar af nam velta með verðtryggð bréf tæpum átta milljörðum króna.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,83% í dag og endaði í 1.001,19 stigum. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 2,76% og Eimskipafélagsins um 1,14%. Gengi bréfa Icelandair lækkaði hins vegar um 0,89%. Velta á hlutabréfamarkaði nam alls 289,5 milljónum króna og þar af nam velta með bréf Icelandair 219,7 milljónum króna.