Borgarstjórn hefur samþykkt að hækka grunnfjárhæð framfærslustyrks velferðarsviðs um sex prósent frá næstu áramótum. Reykjavíkurborg greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Grunnfjárhæð framfærslustyrks fyrir einstakling fer úr 189.875 krónum á mánuði í  201.268 krónur á mánuði. Hjá hjónum og sambúðarfólki fer upphæðin úr 284.813 krónum í 301.902 krónur á mánuði.

Áætlaður viðbótarkostnaður velferðarsviðs Reykjavíkurborgar vegna hækkunar fjárhagsaðstoðar er tæplega 49 milljónir króna á árinu 2019.

Samþykkt var að hækka áætlun fjárhagsaðstoðar um rúmlega 94 milljónir króna á næsta ári. Í heild greiðir Reykjavíkurborg um 2,2 milljarða króna á næsta ári til fjárhagsaðstoðar.