Hlutabréf hækkuðu í Asíu í morgun, þriðja daginn í röð, en það voru fyrst og fremst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins að sögn Reuters fréttastofunnar. Þannig hækkaði MSCI Kyrrahafsvísitalan um 1,6%.

Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 0,8%, í Hong Kong hækkaði Hang Seng vísitalan um 1,9% og í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan um 2,4%.

Í Suður Kóreu hækkaði Kospi vísitalan um 1,3% og í Ástralíu hækkaði S&P200 vísitalan um 1%.