Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,42% í dag og endaði í 1,829 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 39,52%.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair, eða um 2,19% í 617 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa Össurar hækkaði einnig um 0,93% en þó aðeins í 46 milljóna króna króna viðskiptum.

Mest lækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,67% í 160 milljóna króna viðskiptum. Þar á eftir kemur Marel, en gengi bréfa fyrirtækisins lækkaði um 0,40% í viðskiptum upp á 163 milljónir króna.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 1,3 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 9,4 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 1,1 ma. viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 9,3 ma. viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,7 ma. viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 7,7 ma. viðskiptum.