Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,18% í dag og endaði í 1,858 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 1,12% frá áramótum.

Mest hækkaði gengi bréfa Haga, eða um 2,17% í 235 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut hljóðar þá upp á 47,10 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Eimskips, eða um 1,48% í viðskiptum sem hljóðuðu upp á 100 milljónir króna. Verð á hlut er þá 239,5 krónur.

Mikil velta - heilar 862 milljónir króna -var með bréf Icelandair, en engin breyting varð á gengi bréfanna. Verð á hlut hélst í 35,8 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa TM um 2,21% í 57 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 22,15 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa VÍS um 1,61% í 31 milljónar króna viðskiptum. Þá er verð á hlut 8,55 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 1,6 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,34 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 1,6 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 6,8 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 0,9 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 5,9 milljarða króna viðskiptum.