Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,45% í dag og endaði í 1,895 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,79% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Haga, eða um 1,49% í viðskiptum sem hljóða upp á 326 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 47,6 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,81% í 712 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair Group nemur þá 37,3 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda um 0,72% í 38 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut HB Granda er þá 38 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Eimskips í dag, eða um 0,43% í viðskiptum sem hljóða upp á 23 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 231 króna.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 1,78 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,5 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,5% í dag í 1,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 4,3 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,2 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 4,1 milljarða króna viðskiptum.