Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,13% í dag og endaði í 1,888 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,41% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa TM, eða um 3,02% í viðskiptum sem hljóða upp á 221 milljón króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 23,85 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Eimskips, eða um 0,43% í 338 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Eimskips er þá 231 króna.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,20% í 163 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair er þá 37,3 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Símans í dag, eða um 1,23% í viðskiptum sem hljóða upp á 87 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 3,22 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 1,1 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 5,8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 1,1 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 5,2 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 1,6 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 3,6 milljarða króna viðskiptum.