Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,59% í dag og endaði í 1.898,27 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,95% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 4% í viðskiptum sem hljóða upp á 253 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 62,40 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,66% í 400 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair Group er þá 37,9 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Sjóvar, eða um 3,89% í 59 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Sjóvár er þá 12,36 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa VÍS í dag, eða um 3,75% í viðskiptum sem hljóða upp á 189 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 8,98 krónur. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá fyrr í dag hafa tryggingarfélögin fallið snarpt í kjölfar umræðu um arðgreiðslur þeirra.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,2 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 10,7 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,5% í dag í 2 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,3% í dag í 7,6 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,3% í 2,8 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,3% í 4,9 milljarða króna viðskiptum.