Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,72% í dag og endaði í 1901,85 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 1,14% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Eimskips, eða um 1,92% í viðskiptum sem hljóða upp á 333 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 238,5 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Símans, eða um 1,9% í 312 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Símans er þá 3,22 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Reita, eða um 0,71% í litlum 11 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Reita er þá 84,2 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa VÍS í dag, eða um 0,44% í viðskiptum sem hljóða upp á 18 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 9,14 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 1,8 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3,4 milljarðar króna.