Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,74% í dag og endaði í 1886,76 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,34% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,34% í viðskiptum sem hljóða upp á 109 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 37,8 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa HB Granda, eða um 0,55% í 40 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf HB Granda er þá 36,75 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa N1, eða um 0,15% í 164 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut N1 er 64,90 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa TM um 0,23% í viðskiptum upp á 44 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar þá 21,25 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 480 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,6 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,5% í dag í 0,5 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 4,2 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,2 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 4 milljarða króna viðskiptum.