Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,91% í 143,6 milljóna króna viðskiptum í dag og stendur í 938,45 stigum. Gengi bréfa Haga hækkaði um 1,78%, bréf Össurar hækkuðu um 1,60% og Icelandair um 0,81%. Ekkert félag lækkaði í verði í dag. Mest viðskipti voru með bréf Marels, eða fyrir um 74,7 milljónir króna, og hækkaði gengi þeirra um 0,39%.