Nikkei-hlutabréfavísitalan í Tókío lækkaði um liðlega 0,9% og ASX-vísitalan í Astralíu lækkaði einnig eða um 0,6%. Aftur á móti hækkuðu flestar hlutabréfavísitölur annars staðar í Asíu og Eyjaálfu. Þannig hækkaði Hang Seng í Hong Kong og nam hækkunin 0,3% þegar klukkutími lifði af viðskiptum. Hlutabréfavísitalan í Sjanghæ hækkaði umtalsvert meira eða um 1,6%.