Starfsmenn Kjaramálasviðs stéttarfélags Eflingar tóku að sér að aðstoða félagsmenn þess við 186 nýskráð mál á fjórða ársfjórðungi nýliðins árs, sem er 77 færri mál, eða 29% fækkun frá því á ársfjórðungnum á undan.

Þetta kemur fram í nýútkominni Ársfjórðungsskýrslu sviðsins, en af þeim eru 56 launakröfur upp á ríflega 46 milljónir króna. Af heildarfjölda launakrafna voru 15 kröfur í þrotabú upp á 17,3 milljónir króna.

Fimm eða fleiri opnar launakröfur liggja hjá tveimur fyrirtækjum upp á samtals um 17 milljónir króna. Það er hjá Gluggasmiðjunni, þar sem eru 6 launakröfur upp á ríflega 11 milljónir króna og Messanum þar sem eru 5 launakröfur upp á tæplega 6 milljónir króna.

Í tilkynningu Eflingar segir að misvel gangi að innheimta kröfurnar og því berjist stéttarfélagið fyrir því að stjórnvöld efni loforð um sektarheimild, eða svokallað „févíti” í því skyni að bæta árangur innheimtunnar.

Ríflega helmingur félagsmanna erlendir

Af hátt í 25.000 greiðandi félögum í Eflingu voru um 54% af erlendum uppruna í nóvember. Hins vegar var hlutfall félagsmanna af erlendum uppruna sem leituðu til Kjaramálasviðs 64% á ársfjórðungnum.

Mörg mál tengjast greiðslu uppsagnarfrests og kemur það heim og saman við að af 3.711 atvinnulausum Eflingarfélögum voru 75% af erlendum uppruna og 25% af íslenskum uppruna í október síðastliðnum.

Atvinnuleysi meðal Eflingarfélaga var á þessum tíma nokkuð hærra en annars staðar á vinnumarkaði. Atvinnuleysi meðal Íslendinga var 10,6% en atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara 24% í nóvember skv. tölum Vinnumálastofnunar.

Atvinnuleysi kemur því harðar niður á erlendum einstaklingum á vinnumarkaði en íslenskum og enn harðar niður á erlendu verka- og láglaunafólki en öðrum hópum erlendra starfsmanna á vinnumarkaði.

Við þjónustu erlendra félagsmanna kemur sér vel að Efling býr yfir fjölda starfsmanna af ólíkum uppruna og með mikla tungumálakunnáttu. Meðal tungumála sem töluð eru reiprennandi í starfsmannahópnum má nefna ensku, pólsku, litháísku, lettnesku, rússnesku, mandarín kínversku og spænsku.