Meðal-skólagjöld í lögfræðiskóla í Bandaríkjunum er 40.585 dollarar fyrir hvert ár eða um fimm milljónir króna. Þetta er ekki eini kostnaðurinn sem nemandi þarf að hafa í huga því við þetta bætist kostnaðurinn við kaup á skólabókum, ritföngum, leiga á húsnæði, tryggingu og fleiru sem tengist daglegu lífi.
Ef farið er inná síður hjá lögfræðiskólunum gefa þeir upp helsta kostnað. Þegar nánar er grennslast fyrir um námið kemur hins vegar annað á daginn eins og sjá má hér að neðan.
1. Cornell University Law School - Skólagjöld fyrir 1 ár er 6.729.109 krónur ($ 55.222)
Cornell er í Ithaca í New York-ríki á austurströnd Bandaríkjanna. Þetta er einn af svokölluðum Ivy League einkaskólum landsins en skóli með slíkan stimpil fellur í flokk með þeim bestu í landinu. Hæstu skólagjöldin í lögfræðinám er einmitt að finna í Cornell en þau nema um 55.220 dollurum, jafnvirði tæpra 6,7 milljóna íslenskra króna. Með kostnaði vegna heimavistar og kaupa á bókum má áætla að verðið fari á endanum upp í 8,2 milljónir króna.
2. Columbia Law School - Skólagjöld fyrir 1 ár eru 6.536.082 krónur ($ 53.636)
Columbia er í New York-borg og er hann sömuleiðis í Ivy Leage-flokknum. Dyr skólans eru ekki opnar öllum en árið 2010 fengu aðeins 12% umsækjenda inngöngu í skólann. Skólagjöldin í Columbia eru 53.636 dollarar, jafnvirði rúmra 6,5 milljóna króna. Með öllum skólagjöldum má ætla að kostnaðurinn fari upp í tæpa 58 þúsund dali, það er um sjö milljónir króna. Ef nemandinn vill gista á heimavist og kaupa allar námsbækurnar bætast 18.460 dollarar við reikninginn. Skólavist í Columbia kostar minnst 76.210 dollara eða um 9,3 milljónir króna.
3. Northwestern University School of Law - Skólagjöld fyrir 1 ár eru 6.47.052 krónur ($53.168)
Í borg vindanna, Chicago, er Northwestern University. Skólinn var stofnaður árið 1859 og eru um 800 nemendur við skólann. Skólagjöldin eru 53.168 dollarar og kostnaður við bækur og gistingu á heimavist er um 15.458 dollarar. Kostnaðurinn við skólavist í Northwestern er í það minnsta um 68.626 dollarar eða um 8,5 milljónir króna.
4. NYU Law School - Skólagjöld fyrir 1 ár eru 6.233.139 krónur ($51.150)
New York University er í Manhattan-hverfi í New York-borg. Skólinn var stofnaður 1835 og um 1700 nemendur í skólanum. Skólagjöldin eru 51.150 dollarar, tæplega 6,2 milljónir króna. Margir nemendur kjósa frekar að leigja saman íbúð en kostnaðurinn við herbergi á heimavist er 21.720 dollarar, 2,6 milljónir króna. Við þetta bætist kostnaður við bókakaup og ýmislegt annað. Ekki er útilokað að heildarkostnaðurinn við laganám í New York University fari á endanum í 74.370 dollarar, um 9,1 milljónir króna
5. USC Gould School of Law - Skólagjöld fyrir 1 ár eru 6.170.746 krónur ($50.638)
University of Southern California er í Los Angeles í Kaliforníu-fylki. Skólinn var stofnaður árið 1896 og eru rúmlega 650 manns þar við nám. Skólagjöld eru 50.638 dollarar, um 6,1 milljón króna. Með kaupum á bókum og gistingu er viðbúið að kostnaðurinn hækki nokkuð.