Þrír lykilstarfsmenn Íslensku Auglýsingastofunnar hafa ákveðið að segja upp, til þess að stofna nýja auglýsingastofu. Þetta eru þau Kári Sævarsson, Ragnar Jónsson og Sigríður Ása Júlíusdóttir. Kári vildi ekki gefa upp nafn nýja fyrirtækisins, en sagði það ekkert leyndarmál að þau þrjú væru að ljúka störfum.

Stofnendurnir munu að öllum líkindum senda frá sér tilkynningu í lok mánaðarins. Orðrómur hefur verið á lofti að þau væru að taka viðskiptavini með sér í nýja félagið, en að sögn Kára stenst það ekki.