Guðmundur Birgisson, framkvæmdastjóri Keldunnar og Sirrý Hallgrímsdóttir þróunarstjóri hafa bæði látið af störfum hjá Keldunni. Guðmundur, sem áður var framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá VBS, hefur verið framkvæmdastjóri Keldunnar í rúmt ár.Í samtali við Viðskiptablaðið segir Guðmundur að hans starf hafi fyrst og fremst falist í að ýta Keldunni úr vör og enn sé óráðið hvað hann taki sér fyrir hendur.

Þá hefur Sirrý Hallgrímsdóttir einnig látið af störfum en samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var henni boðin staða Guðmundar. Hún mun hins vegar hverfa til annarra starfa innan skamms.